fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Fimm ár síðan hann fór í fangelsi fyrir kynferðislegt athæfi með ungri stúlku – Kærastan hefur nú fyrirgefið honum og eiga þau von á barni

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 25. júlí 2021 14:30

Stacey Flounders og Adam Johnson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Adam Johnson og fyrrverandi kærasta hans, Stacey Flounders, hafa tekið aftur saman og eiga nú von á sínu öðru barni.

Hinn 34 ára gamli Johnson fór í fangelsi árið 2016 fyrir kynferðislegt athæfi með 15 ára gamalli stelpu. Á þeim tíma var Johnson leikmaður Sunderland í ensku úrvalsdeildinni. Hann var rekinn frá félaginu eftir atvikið. Johnson sat af sér þrjú ár af sex ára fangelsisdómi.

Hann og Flounders hættu saman í kjölfarið en eru nú sögð hafa tekið saman aftur á meðan útgöngubann ríkti í Bretlandi. Þá eyddu þau miklum tíma saman með dóttur sinni.

Flounders ætlaði á sínum tíma að standa við bakið á Johnson eftir að hann var kærður fyrir kynferðislega athæfið með stúlkunni ungu. Hún komst hins vegar síðar að því að atvikið hafði átt sér stað aðeins þremur vikum eftir að hún eignaðist þeirra fyrsta barn. Í kjölfarið sleit hún sambandinu og talaði illa um Johnson á opinberum vettvangi.

Flounders virðist hins vegar hafa fyrirgefið honum nú. Hún á von á þeirra öðru barni á næstu vikum. Samkvæmt vinkonu hennar telur Flounders Johnson vera frábæran faðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Alonso sagður setja þessi skilyrði fyrir því að taka við Liverpool

Alonso sagður setja þessi skilyrði fyrir því að taka við Liverpool
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Lineker skýtur á BBC

Lineker skýtur á BBC
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segir United að gefa Bruno það sem hann fer fram á – Hafa ekki efni á því að missa hann

Segir United að gefa Bruno það sem hann fer fram á – Hafa ekki efni á því að missa hann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fullur á skíðum og datt – „Ekki besta hugmyndin að drekka allan daginn“

Fullur á skíðum og datt – „Ekki besta hugmyndin að drekka allan daginn“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Átján mánuðir í óvissu fyrir stjörnuna frá Úkraínu – Óvíst hvað gerist næst

Átján mánuðir í óvissu fyrir stjörnuna frá Úkraínu – Óvíst hvað gerist næst
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Szoboszlai svekktur með stuðningsmenn Liverpool – Biður um betri og meiri stuðning

Szoboszlai svekktur með stuðningsmenn Liverpool – Biður um betri og meiri stuðning