fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

EM 2020: Holland og Austurríki áfram – Úkraína þarf að bíða

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 21. júní 2021 17:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

C-riðill EM 2020 kláraðist nú fyrir stuttu með tveimur leikjum. Holland og Austurríki fara upp úr riðlinum.

Öruggt hjá Hollendingum

Holland tók á móti Norður-Makedóníu í Amsterdam. Þeir appelsínugulu unnu öruggan sigur.

Memphis Depay kom heimamönnum yfir um miðjan fyrri hálfleik. Það var eina mark fyrri hálfleiks.

Gini Wijnaldum skoraði svo með stuttu millibili á fyrsta stundarfjórðungi seinni hálfleiks. Fyrra markið kom á 51. mínútu og það seinna á 58. mínútu. Lokatölur 3-0.

Austurríki áfram eftir sigur

Austurríki vann gríðarlega mikilvægan sigur á Úkraínu í Búkarest.

Christoph Baumgartner gerði eina mark leiksins á 21. mínútu eftir sendingu frá David Alaba. Lokatölur 1-0.

Holland vinnur riðilinn með fullt hús stiga. Austurríki fylgir þeim í 16-liða úrslit mótsins með 6 stig. Úkraína er með 3 stig í þriðja sæti. Þeir þurfa að bíða og sjá hvort sá árangur dugi þeim áfram. Það er þó ekki mjög líklegt. Þau fjögur lið með besta árangur í þriðja sæti af riðlinum sex fara í 16-liða úrslit. Norður-Makedónía lýkur keppni án stiga og er á heimleið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Er á óskalistanum í London ef liðið heldur sér uppi

Er á óskalistanum í London ef liðið heldur sér uppi
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Enn á ný skrifaði Messi söguna

Enn á ný skrifaði Messi söguna
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Mögulegt byrjunarlið Breiðabliks ef Jóhann Berg ákveður að koma heim

Mögulegt byrjunarlið Breiðabliks ef Jóhann Berg ákveður að koma heim
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Virtur fjölmiðill segir United komið á fullt í viðræður við landsliðsmann Brasilíu

Virtur fjölmiðill segir United komið á fullt í viðræður við landsliðsmann Brasilíu
433Sport
Í gær

Má fara frá City í sumar og Tottenham hefur áhuga

Má fara frá City í sumar og Tottenham hefur áhuga
433Sport
Í gær

Pétur rekinn úr Kórnum í gærkvöldi – Sakaður um ósæmilega hegðun

Pétur rekinn úr Kórnum í gærkvöldi – Sakaður um ósæmilega hegðun