fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
433Sport

Áfrýjunin bar árangur – Var ekki hægt að sanna að ummælin „pólskt drasl“ hefðu fallið

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 26. maí 2021 11:41

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur kveðið upp dóm sinn í máli Viktos Smára Elmarsonar sem hafði verið dæmdur í fimm leikja bann fyrir rasísk ummæli. Hefur dómurinn fellt úr gildi úrskurð aga- og úrskurðarnefndar í málinu þar sem Viktori var gert að sæta leikbanni í fimm leiki í keppnum á vegum KSÍ og banni frá Dalvíkurvelli á meðan bannið varir. Þá var sekt knattspyrnudeildar Magna skv. úrskurðinum einnig felld úr gildi.

Viktor Smári hafði verið dæmdur í bann fyrir að hafa kallað andstæðing sinn ,,pólskt drasl.“ Aga- og úrskurðardnefndin sagði ummælin fela í sér fyrirlitningu og niðurlægingu í orði varðandi þjóðernisuppruna. Ekki var hægt að sanna að Viktor hafði látið ummælin falla. Um var að æfingaleik milli Magna og Aftureldingar en Viktor lék með Magna í leiknum sem fór fram á Dalvík.

Í dómnum segir meðal annars. „Enda kemur fram í skýrslu dómara að dómari varð ekki vitni að þeim orðaskiptum. Hefur dómari eftir þjálfara Aftureldingar að einhver rasísk ummæli hafi verið látin falla án þess að staðfest sé með skýrum hætti hvaða orð það voru,“ segir í dómnum.

Úr dómsniðurstöðu í máli nr. 1/2021:
„Í hinum áfrýjaða úrskurði byggir niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar m.a. á skýrslu dómara þar sem atvikum er lýst sem dómari verður ekki vitni að. Í skýrslunni eru leiddar líkur að því leikmaður Magna hafi sagt eitthvað rasískt við leikmann Aftureldingar án þess þó að fyrir liggi með óyggjandi hætti hver meint ummæli hafi í raun verið. Þá er framkoma leikmannsins hörmuð í greinargerð sem barst frá knattspyrnudeild Magna án þess að vitnað sé til brotlegra ummæla leikmanns auk þess sem fram kemur að forráðamenn knattspyrnudeildar Magna, er rita greinargerðina, voru ekki á umræddum leik og urðu því ekki vitni að atvikinu. Leikmaðurinn hefur sjálfur neitað því að hafa látið umrædd ummæli falla í þeim orðaskiptum er urðu á milli hans og leikmanns Aftureldingar þó hann viðurkenni óíþróttamannslega framkomu af sinni hálfu.

Það er mat dómsins að ekki liggi fyrir í gögnum málsins óyggjandi staðfesting á því hvaða orð leikmaður Magna lét falla við leikmann Aftureldingar enda kemur fram í skýrslu dómara að dómari varð ekki vitni að þeim orðaskiptum. Hefur dómari eftir þjálfara Aftureldingar að einhver rasísk ummæli hafi verið látin falla án þess að staðfest sé með skýrum hætti hvaða orð það voru. Dómurinn byggir sönnunarmat sitt á skýrslu dómara og öðrum þeim gögnum sem fram hafa verið lögð í málinu og með hliðsjón af þeim telur dómurinn ekki fullnægjandi sannað að leikmaðurinn hafi viðhaft þau ummæli sem vísað er til í skýrslu dómara og verður hann því ekki talinn hafa gerst brotlegur við gr. 15.1. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál.

Málinu var ekki áfrýjað af hálfu knattspyrnudeildar Magna en heimildin til að beita félagið sektum skv. gr. 15.1. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál er afleidd af broti leikmanns samkvæmt greininni. Þar sem ósannað er að leikmaðurinn hafi gerst brotlegur við gr. 15.1. í reglugerð um aga- og úrskurðarmál skal sekt knattspyrnudeildar Magna á grundvelli hins áfrýjaða úrskurðar felld úr gildi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Gerir risasamning við Pepsi og fær yfir 200 milljónir

Gerir risasamning við Pepsi og fær yfir 200 milljónir
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Liverpool gæti þurft að borga allt að 13 milljónir – Margir að kveðja félagið

Liverpool gæti þurft að borga allt að 13 milljónir – Margir að kveðja félagið
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Staðfestir viðræður við nýjan þjálfara – ,,Held að ákvörðun verði tekin í næstu viku“

Staðfestir viðræður við nýjan þjálfara – ,,Held að ákvörðun verði tekin í næstu viku“