Wayne Rooney er nýr knattspyrnustjóri enska B-deildar liðsins Derby County eftir að hafa verið bráðabirgðastjóri liðsins síðan í nóvember eftir að Philip Cocu var sagt upp störfum.
Það er óhætt að segja að verkefnið framundan hjá Rooney sé erfitt en það er einnig hans fyrsta verkefni sem knattspyrnustjóri. Rooney skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við félagið.
„Það voru nokkrar spurningar sem ég spurði forráðamenn félagsins áður en ég skrifaði undir samninginn. Ég sæti ekki hér, búinn að skrifa undir samninginn ef að ég hefði ekki fengið þau svör sem ég var að leita að,“ sagði Rooney á blaðamannafundi eftir að hafa skrifað undir samning við Derby.
Derby County hefur ekki gengið sem skildi á tímabilinu. Liðið situr í 22. sæti B-deildarinnar með 19 stig eftir 22 leiki. En það eru ekki einungis vandræði innan vallar sem Rooney mun þurfa að glíma við í starfi knattspyrnustjóra.
Félagið hefur verið í viðræðum um eigendaskipti, Sheikh Khaled hefur verið í viðræðum um kaup á félaginu en þau kaup hafa ekki gengið í gegn.
Félagið á í fjárhagserfiðleikum. Sagt var frá því í breskum miðlum í vikunni að Stephen Pearce, stjórnarformaður félagsins, hafi haldið fund með leikmönnum liðsins og þjálfarateymi til þess að útskýra þá fjárhagserfðileika og biðjast afsökunar.
Leikmenn liðsins hafa margir hverjir ekki fengið greidd laun fyrir desembermánuð og því er mikilvægt fyrir félagið að möguleg eigendaskipti gangi hratt fyrir sig.
„Skiljanlega viltu fyrir greitt fyrir vinnuna þína, það mun gerast. Leikmenn munu fá laun sín. Nú snýst þetta um að eigendaskipti eigi sér stað hjá félaginu. Meirihluti launa hefur verið greiddur út, vonandi verður restin greidd fljótlega,“ sagði Rooney um fjárhagserfiðleika Derby County.
Fyrsti leikur Wayne Rooney sem knattspyrnustjóri Derby County verður í dag kl 15:00 gegn Rotherham United í fallbaráttuslag.