fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
433Sport

Barcelona ætlar að fá Sterling til liðsins í janúar

Helga Jónsdóttir
Sunnudaginn 19. september 2021 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona leggur mikla áherslu á að fá Raheem Sterling, leikmann Manchester City, að láni frá félaginu í næsta félagsskiptaglugga.

Sterling hefur ekki verið með öruggt byrjunarliðssæti upp á síðkastið og telur blaðið Sport að Sterling sé opinn fyrir því að yfirgefa Manchester City og semja við Barcelona í von um meiri spilatíma.

Sterling var áður fastamaður í byrjunarliði City en hefur verið mikið á bekknum frá því á seinni hluta síðasta tímabils. Hann er þó einn af uppáhaldsleikmönnum enska landsliðsþjálfarans en hann byrjar alla leiki þar.

Barcelona er í miklum fjárhagsvandræðum og því virðist lánssamningur vera eini möguleikinn þar sem klúbburinn mun að öllum líkindum ekki hafa efni á kappanum á annan hátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þetta eru leikmennirnir í ensku úrvalsdeildinni sem geta nælt sér í jólafrí – Allir á hættusvæði

Þetta eru leikmennirnir í ensku úrvalsdeildinni sem geta nælt sér í jólafrí – Allir á hættusvæði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Borgaði sjálfum sér 253 milljónir í laun á síðasta ára – Starfar mest á Youtube

Borgaði sjálfum sér 253 milljónir í laun á síðasta ára – Starfar mest á Youtube
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hákon Rafn gat lítið gert þegar City vann þægilegan sigur

Hákon Rafn gat lítið gert þegar City vann þægilegan sigur
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Breiðablik framlengir við Kristinn Jónsson – Verður 36 ára á næsta ári

Breiðablik framlengir við Kristinn Jónsson – Verður 36 ára á næsta ári