fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
433Sport

Útilokað að Heimir snúi aftur til Eyja í vetur

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 15. september 2021 15:00

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er útilokað að Heimir Hallgrímsson snúi aftur til ÍBV og taki við meistaraflokki karla félagsins. Þetta herma heimildir 433.is. Stefnir þessi færasti þjálfari Íslands á að halda áfram að starfa erlendis.

Nafn Heimis hefur verið í umræðunni eftir að frá því var greint að Helgi Sigurðsson myndi láta af störfum sem þjálfari liðsins. Helgi hefur ákveðið að hætta eftir að hafa komið liðinu aftur upp í efstu deild.

Heimir er frá Vestmannaeyjum og var þjálfari ÍBV áður en hann tók við starfi hjá íslenska landsliðinu í árið 2011. Hefur hann bæði stýrt kvenna og karlaliði ÍBV.

Heimir lét af störfum hjá Al-Arabi í Katar í sumar, stóð honum til boða að halda starfinu áfram en kaus að leita á önnur mið.

Ekki er útilokað að Heimir fá boð um starf erlendis á næstu vikum en fjöldi fyrirspurna hefur borist á hans borð á undanförnum mánuðum.

Hermann Hreiðarsson, Jón Þór Hauksson og fleiri hafa verið orðaðir við þjálfarastarfið hjá ÍBV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þetta er ástæða þess að Ronaldo neitaði að spila – Er að verða brjálaður á því að vinna ekki titla

Þetta er ástæða þess að Ronaldo neitaði að spila – Er að verða brjálaður á því að vinna ekki titla
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gjörsamlega urðar yfir David og Victoriu Beckham – „Myndu selja dauða sinn og taka börnin með“

Gjörsamlega urðar yfir David og Victoriu Beckham – „Myndu selja dauða sinn og taka börnin með“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sunderland með sannfærandi sigur

Sunderland með sannfærandi sigur
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sá eftirsótti að skrifa undir stóran samning

Sá eftirsótti að skrifa undir stóran samning
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hollendingarnir staðfesta komu Stefáns Inga

Hollendingarnir staðfesta komu Stefáns Inga
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Keyptur til London undir blálok gluggans – Fá leikmann frá Chelsea í staðinn

Keyptur til London undir blálok gluggans – Fá leikmann frá Chelsea í staðinn
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Frá Þýskalandi til Englands

Frá Þýskalandi til Englands