Þann 5. júlí árið 2016 var lögreglan í Hafnarfirði kölluð að heimili í Garðabæ. Fréttablaðið greinir frá því að ástæðan fyrir útkallinu hafi verið sú að Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta og leikmaður Fylkis í Pepsi-Max-deildinni, hafi gengið berserksgang á heimilinu. Hann er sagður hafa brotið allt og bramlað og hótað þáverandi eiginkonu sinni.
Ragnar var ekki lengur á heimilinu þegar lögreglan kom á staðinn en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var íbúðin í slæmu ástandi og víða var að sjá skemmdir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins á KSÍ að hafa fengið upplýsingar um málið frá nágrönnum Ragnars og þáverandi eiginkonu hans.
Kvöldið 4. júlí, nokkrum klukkustundum áður en lögreglan var kölluð út að heimilinu, var verið að taka á móti íslenska karlalandsliðinu og fagna árangri liðsins á Evrópumótinu í Frakklandi. Ragnar var með í þeim fögnuði og var til að mynda uppi á sviði á Arnarhóli ásamt liðsfélögum sínum í landsliðinu. Nóttina eftir fögnuðinn barst lögreglunni svo símtal frá nágranna Ragnars og eiginkonu hans.
Ragnar á að hafa verið boðaður í skýrslutöku nokkrum dögum eftir þetta samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hann er sagður hafa neitað fyrir þær sakir sem honum voru gerðar, hann sagðist ekki hafa beitt þáverandi eiginkonu sína ofbeldi né sýnt ógnandi hegðun. Þáverandi eiginkona Ragnars mætti einnig í skýrslutöku vegna málsins.
Málið var eftir það fellt niður og engin ákæra var gefin út. Nágrannar Ragnars á þessum tíma eiga, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að hafa hringt í KSÍ til að tilkynna þeim um meint heimilisofbeldi landsliðsmannsins. Þá segir að KSÍ hafi ekki gert neitt í málinu og að það hafi verið þaggað niður.