fbpx
Föstudagur 19.september 2025
433Sport

Lítur ansi illa út eftir eftir að gamalt tíst var rifjað upp – Hraunaði yfir menn sem beita konur ofbeldi en er nú sakaður um það sjálfur

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 28. júlí 2021 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Twitter-færsla Joey Barton, knattspyrnustjóra Bristol Rovers, frá 2015 lítur mjög illa út fyrir hann nú í ljósi atburða síðustu daga.

Barton, sem er fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, er sakaður um að hafa veitt eiginkonu sinni höfuðáverka fyrr í sumar.

Atvikið á að hafa átt sér stað fyrir utan heimili vinafólks hjónanna. Eftir hávært rifrildi er Barton sakaður um að hafa gripið um háls McNeil og svo sparkað í höfuð hennar. Í kjölfarið fékk hún blóðnasir.

Barton mætti fyrir dóm á mánudag þar sem hann hafnaði ásökununum.

Þetta mál er alls ekki það fyrsta sem Barton kemur sér í vandræði fyrir. Hann fékk til að mynda dóm árið 2008 fyrir að ráðast á liðsfélaga sinn hjá Man City á æfingu. Þá sat hann inni fyrir aðra líkamsárás það sama ár.

Auk þess var Barton sífellt að koma sér í vandræði inni á knattspyrnuvellinum sjálfum, er hann var leikmaður á sínum tíma, fyrir slæma hegðun sína.

,,Hvernig geturðu lamið konur oft og kennt um atviki sem gerðist fyrir áratug? Menn sem lemja konur eru ekkert nema fávitar,“ skrifaði Barton á Twitter árið 2015. Vakin var athygli á tístinu í kjölfar ásakanna á hendur kappans.

Hér fyrir neðan má sjá tístið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ein besta knattspyrnukona heims sagði takk en nei takk við gylliboði

Ein besta knattspyrnukona heims sagði takk en nei takk við gylliboði
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Messi að skrifa undir

Messi að skrifa undir
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Strákarnir okkar standa í stað eftir tvo frábæra leiki

Strákarnir okkar standa í stað eftir tvo frábæra leiki
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Leikmaður Newcastle hreinskilinn er hann ræddi skipti Isak til Liverpool

Leikmaður Newcastle hreinskilinn er hann ræddi skipti Isak til Liverpool
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vangoldin laun ástæða fyrir skyndilegu brotthvarfi Guðjóns frá Akureyri – „Ekki staðið við það“

Vangoldin laun ástæða fyrir skyndilegu brotthvarfi Guðjóns frá Akureyri – „Ekki staðið við það“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Henry greinir það sem Gyokeres verður að laga – Segir að þetta þurfi að lagast svo Arsenal vinni titla

Henry greinir það sem Gyokeres verður að laga – Segir að þetta þurfi að lagast svo Arsenal vinni titla