fbpx
Laugardagur 20.september 2025
433Sport

Dæmdur í átta ára fangelsi fyrir manndráp

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 29. júní 2021 16:00

Atkinson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benjamin Monk lögreglumaður í Bretlandi hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir manndráp á Dalian Atkinson fyrrum leikmann Aston Villa í enska boltanum. Atkinson lést árið 2016 en málið hefur verið fyrir dómstólum þar í landi.

Atkinson lést 48 ára gamall fyrir utan heimili föður síns, lögregla var kölluð á vettvang þar sem Atkinson lét illum látum.

Málið hefur verið til rannsóknar í þrjú ár en Monk er ákærður fyrir að bera ábyrgð á andláti Atkinson. Þannig kemur fram í gögnum saksóknara að hann hafi notað rafbyssuna á Atkinson í 33 sekúndur, byssuna á aðeins að nota í fimm sekúndu í hvert skipti.

Monk var að skjóta á Atkinson í þriðja skiptið en fyrstu tvær tilraunirnar báru ekki árangur, hann notaði því byssuna í lengri tíma.

Þegar Atkinson féll svo til jarðar er Monk sakaður um að hafa sparkað í tvígang í höfuðkúpu hans. Áverkar voru á líki Atkinson.

Monk hafnaði öllum ákæruliðum en samstarfsfélagi hans Mary Bettley-Smith var sökuð um ofbeldi í garð Atkinson, hún er sökuð um að hafa lamið hann í tvígang með kylfu þegar hann var meðvitundarlaus í jörðinni. Hún neitaði sök og var sýknuð.

Atkinson lék sem atvinnumaður frá 1985 til 2001 en hann lék fyrir Aston Villa, Ipswich, Fenerbache, Real Sociedad og fleiri lið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Hér er mesta spennan fyrir lokaumferðina

Hér er mesta spennan fyrir lokaumferðina
433Sport
Í gær

Allt á suðupunkti á Sauðárkróki í kvöld – Segir níu aðila úr gæslu hafa þurft að fylgja Sveini af vettvangi

Allt á suðupunkti á Sauðárkróki í kvöld – Segir níu aðila úr gæslu hafa þurft að fylgja Sveini af vettvangi
433Sport
Í gær

Guðjón ræddi um mögur síðustu ár í Hafnarfirði en telur byltingu í kortunum

Guðjón ræddi um mögur síðustu ár í Hafnarfirði en telur byltingu í kortunum
433Sport
Í gær

Breiðablik fer til Serbíu

Breiðablik fer til Serbíu
433Sport
Í gær

Telur líkur á að Amorim verði rekinn eftir helgi

Telur líkur á að Amorim verði rekinn eftir helgi
433Sport
Í gær

Kjartan setti Kristin á teinana í beinni útsendingu í gærkvöldi – „Hann er ekki lengur í vinnu, það er búið að svara spurningunni“

Kjartan setti Kristin á teinana í beinni útsendingu í gærkvöldi – „Hann er ekki lengur í vinnu, það er búið að svara spurningunni“