fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026
433Sport

Holstein Kiel staðfestir kaupin á Hólmberti

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 21. júní 2021 16:21

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Holstein Kiel hefur staðfest kaup sín á Hólmberti Aroni Friðjónssyni frá Brescia á Ítalíu. 433.is sagði frá því fyrsta allra á föstudag að Hólmbert væri á leið til félagsins.

Holstein Kiel var hársbreidd frá því að komast upp í þýsku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð, liðið missti af sæti í umspili um laust sæti. Liðið leikur því í næst efstu deild á komandi vetri og er líklegt til þess að fara upp.

Íslenski framherjinn gekk í raðir Brescia fyrir tæpu ári síðan en var þá meiddur, hann var talsvert lengi að jafna sig og fékk fá tækifæri í kjölfarið.

Hólmbert er 28 ára gamall en hann er að semja við fimmta félagið sitt í Þýskalandi, hann lék áður í Skotlandi, Danmörku, Noregi, Ítalíu og er nú á leið til Þýskalands.

Íslendingar hafa komið við sögu hjá Holstein Kiel áður en má þar nefna Eið Aron Sigurbjörnsson sem leikur í dag með ÍBV og Hákon Sverrisson fyrrum leikmann Breiðabliks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Hafna tilraunum Börsunga

Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Fyrir 2 dögum

Salah ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera í sumar

Salah ekki tekið ákvörðun um hvað hann vill gera í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Slæmar fréttir af De Ligt og heilsu hans

Slæmar fréttir af De Ligt og heilsu hans
433Sport
Fyrir 2 dögum

Heimir sposkur á svip þegar Írarnir fóru að forvitnast um launahækkun hans

Heimir sposkur á svip þegar Írarnir fóru að forvitnast um launahækkun hans
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans

Dánarorsök opinberuð í kjölfar hins sorglega andláts – Tók 17 klukkustundir að finna lík hans