fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
433Sport

Selur Range Rover bifreiðina sem hann fékk að gjöf

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 10. júní 2021 09:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Range Rover bifreið sem Kun Aguero gaf starfsmanni Manchester City er nú til sölu á Ebay fyrir 23 þúsund pund. Aguero kvaddi Manchester City með stæl eftir tíu ára dvöl hjá félaginu, Aguero reif fram tæpar tíu milljónir íslenskra króna til að kaupa gjafir fyrir starfsfólk félagsins áður en hann kvaddi.

AGuero keypti úr handa öllum þeim 60 starfsmönnum sem koma að liðinu á bak við tjöldin. Um var að ræða Tag Heuer úr og lét hann grafa í það ´Takk fyrir, Kun Aguero´.

Framherjinn var ekki hættur þar því hann átti lítinn og krúttlegan Range Rover sem Ally Marland fékk að gjöf. Hann selur hann nú

Hann setti því nöfnin á öllum þessum starfsmönnum í pott og ákvað að gefa einum heppnum bílinn, Marland var sá heppni samkvæmt frétt The Athletic. Aguero var ánægður með það enda hafði umræddur maður reynst honum afar vel.

Aguero gekk í raðir Barcelona en hann setti einnig mikla fjármuni í pott til þess að jólagjafir starfsmanna í ár verði veglegar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Gera grín að Dananum sem hafði enga trú á Íslendingunum – Búinn að bóka ferð til Frakklands

Gera grín að Dananum sem hafði enga trú á Íslendingunum – Búinn að bóka ferð til Frakklands
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Kíkti óvænt í heimsókn í sumarfríinu – Sjáðu myndbandið

Kíkti óvænt í heimsókn í sumarfríinu – Sjáðu myndbandið