fbpx
Mánudagur 14.júlí 2025
433Sport

Segir að vandræði Man Utd muni aukast og hjólar í Solskjær – ,,Ekki með nógu góðan stjóra til að keppa við þá bestu“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 1. júní 2021 18:23

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Simon Jordan, þáttastjórnandi á talkSPORT segir að næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni verði erfiðara fyrir Ole Gunnar Solskjær, stjóra Manchester United, heldur en það síðasta. Jordan segir ástæðuna fyrir því vera að stjórar annara liða séu betri.

,,Ég held að koma  (Thomas) Tuchel geri Ole Gunnar Solskjær enn erfiðara fyrir hvað varðar að komast lengra en þar sem hann er núna, sem er að vinna ágætis vinnu en ekki að fara að vinna neitt. Nú er annar þjálfari sem hann þarf að yfirstíga,“ sagði Jordan í þættinum. Tuchel tók við Chelsea í janúar og tók liðið miklum framförum undir hans stjórn. Leiktíð þeirra var svo fullkomnuð þegar félagið varð Evrópumeistari um síðustu helgi eftir 1-0 sigur á Manchester City í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Manchester United átti ágætis tímabil heilt yfir. Liðið hafnaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar og fór í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Þar tapaði liðið fyrir Villarreal eftir vítaspyrnukeppni. Jordan virðist þó ekki sérstaklega hrifinn af Solskjær.

,,Þetta snýst ekki bara um leikmenn heldur einnig um stjórnun. Guardiola og Klopp hafa verið elítu-þjálfarar og nú erum við með annan alvöru stjóra. Svo er Brendan Rodgers líka þarna. Ég held að vandræði Manchester United verði stærri á næsta ári því þeir eru ekki með nógu góðan stjóra til að keppa við þá bestu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu slagsmálin – Luis Enrique „kýldi“ stjörnu Chelsea í gólfið

Sjáðu slagsmálin – Luis Enrique „kýldi“ stjörnu Chelsea í gólfið
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Donald Trump stal senunni eftir að Chelsea vann HM í gær – Sjáðu myndbandið

Donald Trump stal senunni eftir að Chelsea vann HM í gær – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Firmino fer til Katar

Firmino fer til Katar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Nunez fagnaði að hætti Jota

Nunez fagnaði að hætti Jota
433Sport
Í gær

Bíða eftir risatilboðum frá ensku stórliðunum

Bíða eftir risatilboðum frá ensku stórliðunum
433Sport
Í gær

Leitast ekki eftir því að selja og vilja 100 milljónir

Leitast ekki eftir því að selja og vilja 100 milljónir
433Sport
Í gær

Líkur á að Tyrkinn verði í marki United í byrjun tímabils

Líkur á að Tyrkinn verði í marki United í byrjun tímabils
433Sport
Í gær

Virtist skjóta á fyrrum stjóra félagsins – ,,Erum komnir í úrslitaleikinn vegna hans“

Virtist skjóta á fyrrum stjóra félagsins – ,,Erum komnir í úrslitaleikinn vegna hans“