

Jason Cundy þáttastjórnandi á Talksport útvarpsstöðinni í Bretlandi segir að Manchester United verði að reka Ole Gunnar Solskjær úr starfi í sumar. United tapaði í vítaspyrnukeppni í úrslitum Evrópudeildarinnar í gær.
Ole Gunnar Solskjær var þar í dauðafæri á að vinna sinn fyrsta titil í starfi hjá United. „Það er ekkert jákvætt þarna, þetta var hryllingur. Þetta er skelfilegt fyrir Ole,“ sagði Jason Cundy á Talksport eftir leik.
„Ég hef séð nóg af United undir stjórn Solskjær, þeir verða að fara í aðra átt. Ég sé ekki Solskjær sem neina lausn fyrir United.“
„Ole fær mikið lof, hann er góður maður og það kunna allir vel við hann. Þessi heimur er hins vegar harður. United verður að láta hann fara fyrir næstu leiktíð.“
Cundy segir að United eigi að láta tli skara skríða og ráða Antonio Conte sem hætti hjá Inter í gær. „Conte hefur unnið ensku deildina og var að vinna Seriu A, hann veit hvernig skal vinna titla. Þegar Conte hætti hjá Inter þá taldi ég strax að United ætti að kýla á það.“