fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
433Sport

Hver hefur verið bestur í enska boltanum á tímabilinu?

Helga Jónsdóttir
Mánudaginn 3. maí 2021 20:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú þegar enska úrvalsdeildin fer að klárast þá líður að því að besti leikmaður deildarinnar verði valinn. Kevin DeBruyne var valinn leikmaður ársins í fyrra. Daily Mail birti lista þar sem farið var yfir þá sem eru líklegastir í ár. Þrír leikmenn Manchester City eru á listanum og þá kemst einn leikmaður Englandsmeistara Liverpool á listann.

Listann má sjá hér að neðan:

Ilkay Gundogan
Gundogan hefur verið algjörlega frábær í geggjuðu liði Manchester City. Hann er kominn með 12 mörk í deildinni sem er persónulegt met fyrir hann. Hann hefur verið hjartað í sóknarleik City í deildinni í vetur og hefur valdið usla í vörn andstæðinganna trekk í trekk.

Harry Kane
Gengi Tottenham hefur kannski ekki verið upp á marga fiska í vetur en Harry Kane er að eiga eitt af sínum bestu tímabilum hingað til. Hann leiðir kapphlaupið um gullskóinn með 21 mark og er líka með flestar stoðsendingar í deildinni eða 13 talsins. Enginn leikmaður hefur komið að jafn mörgum mörkum og Kane í vetur. Þá er Tottenham enn í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Bruno Fernandes
Bruno hefur verið frábær í vetur og skorar reglulega en hann er kominn með 16 mörk í deildinni. Það hefur þó aðeins dregið úr markaskorun hjá kappanum á seinni hluta tímabilsins. Hann hefur verið virkilega stöðugur og hefur oft komið liði sínu til bjargar í vetur.

Ruben Dias
Það er engum blöðum að fletta um það að Ruben Dias hefur verið frábær og einn besti miðvörður deildarinnar í vetur. Eftir komu hans frá Benfica í sumar hefur hann átt fast sæti í liðinu og City virðast loksins búnir að finna nýjan Vincent Kompany. Dias hefur haldið hreinu í helming þeirra leikja sem hann hefur spilað.

Mohamed Salah
Salah vann til verðlaunanna árið 2018 og gæti verið að hann hreppi þau aftur í ár. Liverpool liðið hefur verið langt undir væntingum en Salah hefur verið ljósið í myrkrinu fyrir stuðningsmenn. Salah er annar í kapphlaupinu um gullskóinn og er kominn með 20 mörk úr deildinni.

Kevin DeBruyne
Við skulum ekki gleyma handhafa verðlaunanna í fyrra. Hann hefur kannski ekki skorað jafn mikið og hann gerði á síðasta tímabili en hann er ennþá jafn mikilvægur fyrir liðið og getur sundurspilað vörn andstæðinganna. Hann hefur skorað 6 mörk í deildinni og gefið 11 stoðsendingar.

Jack Grealish
Jack Grealish er eini leikmaðurinn á listanum utan „stóru sex“ liðanna í ár. Hann hefur heillað knattspyrnuáhugamenn í vetur og látið stuðningsmenn Aston Villa dreyma um Meistaradeildarsæti. Hann er kominn með 6 mörk í deildinni og hefur gefið 12 stoðsendingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir að Maignan hafi tekið ákvörðun sjálfur

Segir að Maignan hafi tekið ákvörðun sjálfur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Deco vorkennir fyrrum leikmanni Barcelona – Seldur eftir rúmlega eitt ár

Deco vorkennir fyrrum leikmanni Barcelona – Seldur eftir rúmlega eitt ár
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Staðfesta komu Edu sem mun sjá um öll félögin

Staðfesta komu Edu sem mun sjá um öll félögin
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Mbeumo að verða pirraður og Brentford er einnig farið að pirra sig

Mbeumo að verða pirraður og Brentford er einnig farið að pirra sig
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Liverpool búið að skella verðmiða á Darwin

Liverpool búið að skella verðmiða á Darwin
433Sport
Í gær

Bjarni fer yfir vonbrigðin og framhaldið – Hlustaðu á þáttinn hér

Bjarni fer yfir vonbrigðin og framhaldið – Hlustaðu á þáttinn hér
433Sport
Í gær

Staðfesta kaup á íslenska landsliðsmanninum – Kristian gerir fjögurra ára samning

Staðfesta kaup á íslenska landsliðsmanninum – Kristian gerir fjögurra ára samning
433Sport
Í gær

United gat fengið rúma 2 milljarða en Amorim vildi ekki sjá myndavélar Amazon á svæðinu

United gat fengið rúma 2 milljarða en Amorim vildi ekki sjá myndavélar Amazon á svæðinu
433Sport
Í gær

Furða sig á nafnavenjum Íslendinga

Furða sig á nafnavenjum Íslendinga