Fyrri leikir undanúrslita Evrópudeildarinnar fóru fram í kvöld. Manchester United bar sigur úr býtum gegn Roma á heimavelli og Arsenal laut í lægra haldi gegn Villarreal á útivelli.
Á Old Trafford í Manchesterborg, tóku heimamenn í Manchester United á móti ítalska liðinu Roma. Leiknum lauk með 6-2 sigri Manchester United í fjörugum leik.
Paul Pogba var á meðal markaskorara Manchester United í leiknum, hann segir einvígið ekki búið þrátt fyrir öruggan sigur í kvöld.
„Jákvæð úrslit en þetta er ekki búið. Við þurfum að halda einbeitingu og spila seinni leikinn með sama hugarfari.“
Manchester United var 2-1 undir í hálfleik en sneri taflinu við í seinni hálfleik.
„Í hálfleik einsettum við okkur að einfalda spilamennsku okkar í seinni hálfleik, gera auðvelda hluti. Við vorum allir hungraðir í að skora eins mörg mörk og við gætum,“ sagði Paul Pogba, leikmaður Manchester United í viðtali við BT Sport eftir leik.
Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, var að vonum sáttur með úrslit kvöldsins en hann segir einvígið ekki búið.
„Mér líður ekki eins og okkar verki sé lokið en við gerðum vel í kvöld.“
Manchester United skoraði sex mörk í kvöld og sneri tapaðri stöðu í hálfleik, sér í vil.
„Við erum með skapandi leikmenn sem geta komið okkur í mikilvæg augnablik í leiknum. Staðsetningar Pogba í dag voru mjög góðar, hann fær ákveðið frjálsræði í okkar spilamennsku og hann býr við góðan grunn á bakvið sig. Það sem skipti sköpum í dag var að við nýttum færin okkar.“
„Leikmennirnir sýndu mikinn karakter, komu til baka og misstu ekki hausinn,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United í viðtali við BT Sport eftir leik.
Á Estadio De La Cerámica á Spáni, tóku heimamenn í Villarreal á móti Arsenal. Leiknum lauk með 2-1 sigri Villarreal.
Þetta var erfitt kvöld fyrir leikmenn Arsenal en Bukayo Saka er ánægður með viðbrögð leikmanna í seinni hálfleik er liðið var 2-0 undir.
„Við getum tekið margt jákvætt úr seinni hálfleik. Þetta eru undanúrslit og þú getur ekki byrjað leiki eins og við gerðum í kvöld, við sköpuðum ekki neitt, vorum passívir og töpuðum öllum einvígum. Ég er ánægður með að í seinni hálfleik stigum við upp sem varð til þess að við eigum möguleika á heimavelli.
Arsenal missti mann af velli með rautt spjald í seinni hálfleik og náði að skora mikilvægt útivallarmark einum manni færri.
„Við sýndum að við erum betri en þeir, meira að segja einum manni færri. Þetta er undir okkur komið, þegar að við spilum vel þá getum við unnið hvaða lið sem er,“ sagði Bukayo Saka, leikmaður Arsenal í viðtali við BT Sport eftir leik.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal er ekki af baki dottinn þrátt fyrir tap í kvöld.
„Við vildum ekki koma hingað í kvöld og tapa en miðað við hvernig leikurinn þróaðist verðum við að sætta okkur við úrslitin. Ef maður þarf að tapa þá eru þetta líklegast bestu úrslitin sem við hefðum geta fengið.“
Arteta segist hafa séð mikinn mun á spilamennsku Arsenal milli hálfleika.
„Þetta voru tveir mismunandi hálfleikir hjá okkur. Í seinni hálfleik fórum við að vera líkir sjálfum okkur. Í fyrri hálfleik voru alltof margar stundir sem við vorum það ekki. Við byrjuðum að elta, vorum ónákvæmir með boltann og stjórnuðum ekki leiknum. Okkur vantaði alla ógn eða löngun í að sækja að marki andstæðingsins. Í seinni hálfleik var þetta allt önnur saga.“
Aubameyang fékk dauðafæri undir lok leiks til þess að jafna leikinn fyrir Arsenal en brást bogalistin. Arteta hefur trú á sínum mönnum fyrir seinni leikinn.
„Við eigum möguleika á sigri,“ sagði Arteta í viðtali við BT Sport eftir leik.