Knattspyrnukonan Madelene Wright var rekin frá Charlton Athletic á síðasta eftir að röð myndbanda af henni fór í umferð á veraldarvefnum. Hún vonast til að koma ferli sínum aftur af stað.
Þessi 22 ára knattspyrnukona hafði deilt myndböndum af sér að taka inn hláturgas, sem er ekki vel liðið innan fótboltans. Annað myndband fór í umferð af henni að drekka áfengi á meðan hún brunaði áfram á bifreið sinni. Þriðja myndbandið sýndi svo Madelene stunda kynlíf á meðan hún talaði í símann. Charlton rak stúlkuna frá félaginu vegna þessara myndbanda.
„Ég byrja að æfa aftur á morgun, ég er stressuð en spennt að fara í skóna aftur,“ segir Wright sem vonast til að fá samning hjá nýju félagi innan tíðar.
Hún var rekin frá Charltona vegna þessara mála en síðan þá hefur hún fengið mikla umfjöllun og hefur nýtt sér það til að búa til peninga.
Madelene er orðin virkur notandi á vefsíðunni OnlyFans, síða sem vakið hefur talsverða athygli síðasta árið. OnlyFans er miðill sem gerir notendum kleift að selja efni sitt til áskrifenda gegn mánaðarlegu gjaldi. Klámstjörnur eru vinsælar á miðlinum en einnig áhrifavaldar sem selja djarfar myndir af sér. Aðdáendur geta einnig sent notendum skilaboð og lagt fram beiðni um myndefni gegn gjaldi. Það er hægt að græða á tá og fingri. Madelene rukkar 33 pund á mánuði fyrir áskrift af myndefni af sér, tæpar 6 þúsund krónur og samkvæmt erlendum fjölmiðlum er fjöldinn allur af fólki áskrifandi af myndefni hennar.