fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
433Sport

Norska ‘undrabarnið’ hefur heillað Arteta

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 22. mars 2021 18:29

Martin Ödegaard. GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, er ánægður með framlag Martin Ödegaard, síðan að hann gekk til liðs við Arsenal á lánssamningi frá Real Madrid.

Ödegaard kom til Arsenal í janúar og var lykilmaður í endurkomu liðsins gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í gær. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli en Arsenal lenti 3-0 undir.

„Ég tel að hann hafi átt framúrskarandi frammistöðu. Hann sýndi mikla snilli með því hvernig hann las leikinn og með þeim áhrifum sem hann hafði á leik okkar, enn og aftur sýndi hann okkur hversu mikið hann vill vinna,“ sagði Arteta um Ödegaard eftir leik gærdagsins.

Ödegaard, hefur spilað 12 leiki fyrir Arsenal og hefur haft góð áhrif á leik liðsins að mati Arteta.

Íþróttablaðamaðurinn Fabrizio Romano, greindi frá því í kvöld að forráðamenn Arsenal væru „mjög ánægðir“ með Ödegaard og að þeir vilji reyna kaupa leikmanninn.

Romano segir að Arsenal vilji hefja viðræður við Real Madrid eftir tímabilið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ekki búinn að missa klefann í Lundúnum

Ekki búinn að missa klefann í Lundúnum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Gerir lítið út hegðun Palmer – ,,Nei, nei, ekkert vesen“

Gerir lítið út hegðun Palmer – ,,Nei, nei, ekkert vesen“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum
Garner aftur til United?
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Amorim viðurkennir að tveir lykilmenn gætu kvatt United á næsta ári

Amorim viðurkennir að tveir lykilmenn gætu kvatt United á næsta ári
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Tvær goðsagnir neita að ræða málin um 20 árum seinna – ,,Hann gerði risastór mistök með þessum ummælum“

Tvær goðsagnir neita að ræða málin um 20 árum seinna – ,,Hann gerði risastór mistök með þessum ummælum“
433Sport
Í gær

Byrjunarliðin í enska boltanum – Kemur fyrsti sigurinn í dag?

Byrjunarliðin í enska boltanum – Kemur fyrsti sigurinn í dag?
433Sport
Í gær

Wenger nýr yfirmaður Arnars Þórs

Wenger nýr yfirmaður Arnars Þórs
433Sport
Í gær

Segir að Ronaldo sé ekkert að hugsa um mörkin

Segir að Ronaldo sé ekkert að hugsa um mörkin
433Sport
Í gær

Kristján allt annað en hrifinn – „Þetta er bara galið“

Kristján allt annað en hrifinn – „Þetta er bara galið“