fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
433

Fullyrt að Tryggvi Guðmundsson hafi verið rekinn fyrir að mæta ölvaður

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 20. mars 2021 19:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tryggvi Guðmundsson hefur verið rekinn úr starfi hjá Kormáki/Hvöt en hann var ráðinn þjálfari liðsins 24 febrúar.

Fótbolti.net segir frá en þar segir. „Samkvæmt heimildum Fótbolta.net mætti Tryggvi undir áhrifum áfengis á æfingu liðsins á dögunum sem og í leikinn gegn Úlfunum í dag,“ segir í frétt Fótbolta.net.

Kormákur/Hvöt réð Tryggva eins og fyrr segir til starfa í febrúar og hafði metnað til að fara upp úr neðstu deild með Tryggva við stjórnvölin.

Tryggva þarf ekki að kynna fyrir knattspyrnuáhugafólki en hann átti afar farsælan feril hér á landi með ÍBV, KR og FH. Hann náði góðum árangri erlendis og spilaði fjölda landsleikja.

Tryggvi hefur ágætis reynslu af þjálfun en hann var um tíma aðstoðarþjálfari ÍBV og stýrði svo Vængjum Júpíters í 3 deild karla.v

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmenn Liverpool enn að jafna sig eftir andlátið í sumar

Leikmenn Liverpool enn að jafna sig eftir andlátið í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum stórstjarna mögulega á leið í fangelsi vegna kynferðisbrots – Þarf að svara fyrir sig á næstu dögum

Fyrrum stórstjarna mögulega á leið í fangelsi vegna kynferðisbrots – Þarf að svara fyrir sig á næstu dögum
433Sport
Í gær

Fengi miklu meiri gagnrýni ef hann væri ekki í Liverpool

Fengi miklu meiri gagnrýni ef hann væri ekki í Liverpool
433Sport
Í gær

Hefur reynt allt til að hjálpa Jesus á erfiðum tímum

Hefur reynt allt til að hjálpa Jesus á erfiðum tímum