Patrick Vieira, fyrrverandi fyrirliði Arsenal, er einn af þeim einstaklingum sem kemur til greina í starf knattspyrnustjóra Bournemouth samkvæmt heimildum The Athletic.
Vieira er án starfs eftir að hafa verið látinn fara úr starfi knattspyrnustjóra hjá franska liðinu Nice árið 2020. Áður hafði hann verið knattspyrnustjóri bandaríska liðsins New York City FC á árunum 2016-2018.
Vieira er ekki eini einstaklingurinn sem kemur til greina í starf knattspyrnustjóra hjá Bournemouth sem leikur í ensku B-deildinni. David Wagner, fyrrverandi knattspyrnustjóri Huddersfield og Schalke 04 kemur einnig til greina í starfið.
Þá er það einnig skilningur blaðamanns The Athletic að John Terry, aðstoðarþjálfari Aston Villa, komi ekki til greina í starfið.
Jason Tindall var áður knattspyrnustjóri Bournemouth en hann var látinn fara á dögunum og Jonathan Woodgate var ráðinn bráðabirgðastjóri liðsins.
Bournemouth er sem stendur í 6. sæti ensku B-deildarinnar sem gefur rétt í úrslitakeppni um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er með 45 stig eftir 28 leiki.