fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
433Sport

Hvað gerir Lionel Messi?

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 9. febrúar 2021 11:00

Lionel Messi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhugaverð staða er uppi hjá Lionel Messi, einum besta knattspyrnumanni sögunnar en samningur hans við Barcelona er á enda í sumar.

Messi er frjálst að ræða við önnur félög en mikið hefur verið rætt og ritað um Messi og PSG síðustu vikur, franska félagið á sér þann draum að fá Messi til Parísar.

Messi gæti myndað öflugt teymi með Kylian Mbappe og Neymar í París en ekki er öruggt að félagið hafi efni á þremur stórstjörnum.

ESPN segir frá því að Manchester City hafi enn áhuga, félagið vildi fá Messi síðasta sumar en hann fékk ekki að yfirgefa Barcelona.

ESPN hefur eftir heimildarmanni að það séu mistök hjá PSG að tala mikið um málið í fjölmiðlum, það sé ekki sú leið sem Messi vill fara.

Ekki er útilokað að Messi verði áfram hjá Barcelona en það fer allt eftir því hver verður kjörinn forseti og hvort að félagið hafi fjármuni til að greiða honum þessi svakalegu laun sem hann vill. Barcelona glímir við mikla fjárhagsörðuleika.

„Það er góður möguleiki á því að Messi komi, við verðum að vera rólegir og láta málið þróast,“ sagði Angel di Maria leikmaður PSG á dögunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Skattahækkanir í Bretlandi ástæða þess að ríka fólkið er að flýja – „Þegar maður sér kerfi sem eru að hrynja, þá spyr maður sig“

Skattahækkanir í Bretlandi ástæða þess að ríka fólkið er að flýja – „Þegar maður sér kerfi sem eru að hrynja, þá spyr maður sig“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Van Dijk hafði engan áhuga á að ræða um Trent eftir sigurinn í gærkvöldi – „Nei“

Van Dijk hafði engan áhuga á að ræða um Trent eftir sigurinn í gærkvöldi – „Nei“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ronaldo opinberar hvernig hann bað Georginu – Er ekki rómantískur og gerðist um miðja nótt

Ronaldo opinberar hvernig hann bað Georginu – Er ekki rómantískur og gerðist um miðja nótt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ian Jeffs ráðinn þjálfari Breiðabliks

Ian Jeffs ráðinn þjálfari Breiðabliks
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ten Hag sagður mjög efins um að taka starfið að sér

Ten Hag sagður mjög efins um að taka starfið að sér
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arnar fer ítarlega yfir valið og stórt verkefni fyrir höndum – „Einhverra hluta vegna fór hann framhjá fólki, þetta var bara sjálfsagt mál“

Arnar fer ítarlega yfir valið og stórt verkefni fyrir höndum – „Einhverra hluta vegna fór hann framhjá fólki, þetta var bara sjálfsagt mál“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Lúðvík valdi hóp U21 árs landsliðsins – Stýrir liðinu tímabundið á meðan leitað er að arftaka Ólafs Inga

Lúðvík valdi hóp U21 árs landsliðsins – Stýrir liðinu tímabundið á meðan leitað er að arftaka Ólafs Inga
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Anton Ingi tekur við starfi Óskars í Úlfarsárdal

Anton Ingi tekur við starfi Óskars í Úlfarsárdal
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér