fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Tottenham í slæmri stöðu eftir tap heima – Atalanta skoraði fjögur

Victor Pálsson
Miðvikudaginn 19. febrúar 2020 21:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham er ekki í frábærri stöðu í Meistaradeildinni eftir leik við RB Leipzig í kvöld.

Um var að ræða leik í 16-liða úrslitum keppninnar en fyrri viðureignin fór fram á heimavelli enska liðsins.

Það var Leipzig sem hafði betur í kvöld en eina markið skoraði Timo Werner fyrir gestina.

Werner gerði mark Leipzig á 58. mínútu úr vítaspyrnu eftir að Ben Davies hafði gerst brotlegur.

Í hinum leik kvöldsins þá áttust við Atalanta og Valencia og eru þeir ítölsku í mjög góðri stöðu.

Atalanta vann öruggan 4-1 heimasigur og er því í virkilega ákjósanlegri stöðu fyrir seinni leikinn.

Tottenham 0-1 Leipzig
0-1 Timo Werner(víti, 58′)

Atalanta 4-1 Valencia
1-0 Hans Hateboer(16′)
2-0 Josip Ilicic(42′)
3-0 Remo Freuler(57′)
4-0 Hans Hateboer(63′)
4-1 Denis Cheryshev(66′)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Börsungar sagðir vilja fá Rashford aftur á láni frekar en að kaupa hann

Börsungar sagðir vilja fá Rashford aftur á láni frekar en að kaupa hann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Eru að kaupa framherjann sem þeir náðu ekki að fá í janúar

Eru að kaupa framherjann sem þeir náðu ekki að fá í janúar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

United stefnir á að stíga næsta skref í að byggja nýjan völl á næstu mánuðum

United stefnir á að stíga næsta skref í að byggja nýjan völl á næstu mánuðum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Neymar er verulega ósáttur með Ancelotti

Neymar er verulega ósáttur með Ancelotti