Argentínska knattspyrnugoðsögnin, Diego Armando Maradona, sem er af mörgum talinn besti knattspyrnumaður sögunnar, fagnar 60 ára afmæli sínu í vikunni.
Maradona skoraði eitt umdeildasta mark knattspyrnusögunnar þegar hann skoraði með vinstri hendinni í 2-1 sigri gegn Englandi í 8-liða úrslitum Heimeistarakeppninnar í Mexíkó árið 1986. Markið hefur fengið viðurnefnið „Hendi guðs“.
Í viðtali við France Football á dögunum var Maradona spurður að því hvað hann myndi vilja í 60 ára afmælisgjöf.
„Mig dreymir um að skora annað mark gegn Englandi, núna myndi ég vilja gera það með hægri hendi,“ svaraði Maradona kíminn.
Maradona hefur áður neitað að biðjast afsökunar á markinu. Í hans augum er markið táknræn hefnd gegn Englandi fyrir Falklandseyjastíðið. En það var stríð milli Bretlands og Argentínu um yfirráð yfir Falklandseyjum. Stríðið stóð yfir í tíu vikur og lauk með uppgjöf Argentínu.
Argentínska landsliðið fór alla leið á Heimsmeistaramótinu 1986 og stóð uppi sem heimsmeistari.