fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433Sport

Þór/KA vann FH í fallbaráttuslag

Aron Guðmundsson
Laugardaginn 26. september 2020 17:00

Þór/KA: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þór/KA sigraði FH 1-2 í fallbaráttuslag Pepsi-Max deildar kvenna í dag. Leikið var á Kaplakrikavelli.

Berglind Baldursdóttir kom Þór/KA yfir á 15. mínútu. FH svaraði fyrir sig á 21. mínútu þegar Phoenetia Maiya jafnaði leikinn með marki úr vítaspyrnu.

Berglind Baldursdóttir var síðan aftur á ferðinni fyrir Þór/KA þegar hún skoraði annað mark liðsins á 65. mínútu. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum.

Þór/KA kom sér með þessum sigri úr fallsæti og upp fyrir FH. Liðið er í 8. sæti með 15 stig. FH er eftir leikinn í 9. sæti deildarinnar með 13 stig.

FH 1 – 2 Þór/KA
0-1 Berglind Baldursdóttir (’15)
1-1 Phoenetia Maiya (’21)
1-2 Berglind Baldursdóttir (’65)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United
433Sport
Í gær

Hafna tilraunum Börsunga

Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Í gær

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik
433Sport
Í gær

Hákon og félagar töpuðu í Birmingham – Sverrir fékk skell

Hákon og félagar töpuðu í Birmingham – Sverrir fékk skell