fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Tottenham vann mikilvægan og sannfærandi sigur á Leicester

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 19. júlí 2020 16:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham tók á móti Leicester á heimavelli í dag. Bæði lið þurftu nauðsynlega á sigri að halda en Tottenham er í baráttunni um Evrópusæti á meðan Leicester reynir að halda í Meistaradeildarsæti.

Tottenham komst snemma yfir með sjálfsmarki sem James Justin skoraði. Markið var þó dæmt ógilt af eftir skoðun VAR. Það breytti þó ekki miklu fyrir Tottenham því einungis mínútu eftir að sjálfsmarkið var dæmt ógilt þá skoraði Son Heung-min fyrir Tottenham.

Á 37. mínútu náði Harry Kane að koma boltanum í netið og kemur Tottenham í 2-0. Örfáum mínútum síðar skorar Kane annað mark sitt með frábæru skoti frá horni vítateigsins. Staðan var því 3-0 í hálfleik. Seinni hálfleikur var ekki jafn viðburðamikill og sá fyrri en hvorugt lið skoraði í seinni hálfleik, nóg var þó um tilraunir beggja liða.

Niðurstaðan er góður sigur fyrir Tottenham menn sem færast nær því að tryggja sér Evrópusæti. Þetta er hins vegar afar slæmt fyrir Leicester sem gæti misst Meistaradeildarsætið sitt yfir til Manchester United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Hefur jafnað sig af meiðslum en er nú matareitrun

Hefur jafnað sig af meiðslum en er nú matareitrun
433Sport
Í gær

Lofsyngur viðhorf Rashford – Ekki tekið ákvörðun hvort þeir kaupi hann

Lofsyngur viðhorf Rashford – Ekki tekið ákvörðun hvort þeir kaupi hann
433Sport
Í gær

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“
433Sport
Í gær

Skoða það að semja við Antonio sem er staðráðinn í að halda áfram

Skoða það að semja við Antonio sem er staðráðinn í að halda áfram
433Sport
Í gær

Salah snýr aftur

Salah snýr aftur
433Sport
Í gær

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum