

Ahmed Bahaa er ekki nafn sem margir kannast við en hann er ungur maður frá Egyptalandi.
Bahaa er ekki þekktur fyrir neitt sérstakt nema það að vera lúmskur tvífari Mohamed Salah, leikmanns Liverpool.
Bahaa hefur öðlast töluverða frægð í heimalandinu vegna þess en aðdáendur koma reglulega upp að honum.
Það er þó vegna þess að þeir halda að hann sé knattspyrnustjarnan sjálf enda svipur með þeim félögum.
Bahaa hefur ekkert á móti því þegar fólk kemur að honum og vill sjá eins marga brosa og hægt er.
Myndband af þessu má sjá hér.
This Mo Salah lookalike is spot on! pic.twitter.com/VxDX7AGfSz
— The Sun Football ⚽ (@TheSunFootball) June 15, 2020