fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
433Sport

Rúnar Páll brjálaður og segir þetta hafa verið árás: „Jesús minn almáttugur“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 16. júní 2020 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það voru væntanlega ófáir Stjörnumenn glaðir í gær eftir leik liðsins við Fylki í efstu deild karla. Um var að ræða fyrsta leik beggja liða á þessu tímabili og var spilað á heimavelli Stjörnunnar í Garðabæ. Stjarnan byrjaði ansi illa og komst Fylkir yfir með marki frá Valdimari Þór Ingimundarsyni á fyrstu mínútu.

Markavélin Hilmar Árni Halldórsson jafnaði metin fyrir Stjörnuna á 26. mínútu en hann skoraði geggjað mark beint úr aukaspyrnu. Ólafur Ingi Skúlason fékk rautt spjald hjá Fylki á 88. mínútu en hann átti ljóta tæklingu á Alex Þór Hauksson og dómurinn réttur. Stjarnan náði svo að tryggja stigin þrjú í uppbótartíma er ungstirnið Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði.

Brot Ólafs var í grófari kantinum og „Þetta er bara árás. Alveg hrikalega gróft,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar á Stöð2 Sport um brotið.

Rúnar var augljóslega mjög ósáttur með brotið og þegar hann fékk að sjá það aftur voru viðbrögðin þessi.

„Mig minnir að hann hafi fengið sams konar spjald í vetur á móti okkur, þar sem að hann tók einn og straujaði hann. Þetta er alveg gjörsamlega galið. Að svona reyndur maður skuli fara svona. Hann gæti stórslasað Alex, bara þannig að ferillinn væri búinn. Þetta er ótrúlega heimskulegt, Jesús minn almáttugur,“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjö félög sem gætu reynt að fá Salah frítt í sumar

Sjö félög sem gætu reynt að fá Salah frítt í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þorsteinn velur hóp fyrir mikilvæga landsleiki – Báðir á Laugardalsvelli í næsta mánuði

Þorsteinn velur hóp fyrir mikilvæga landsleiki – Báðir á Laugardalsvelli í næsta mánuði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Maðurinn sem hatar Heimi heldur áfram eftir gærkvöldið – „Tann­læknirinn hefur fengið tækifæri, nú verður hann að fara“

Maðurinn sem hatar Heimi heldur áfram eftir gærkvöldið – „Tann­læknirinn hefur fengið tækifæri, nú verður hann að fara“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Enrique færir Michael Carrick góðar fréttir

Enrique færir Michael Carrick góðar fréttir
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Salah áfram í Evrópu eftir allt saman?

Salah áfram í Evrópu eftir allt saman?
433Sport
Í gær

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni
433Sport
Í gær

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni