fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
433Sport

Blaðamaður Morgunblaðsins baunar á sveitunga sína

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 16. júní 2020 09:30

Skjáskot: K100

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það voru væntanlega ófáir Stjörnumenn glaðir í gær eftir leik liðsins við Fylki í efstu deild karla. Um var að ræða fyrsta leik beggja liða á þessu tímabili og var spilað á heimavelli Stjörnunnar í Garðabæ. Stjarnan byrjaði ansi illa og komst Fylkir yfir með marki frá Valdimari Þór Ingimundarsyni á fyrstu mínútu.

Markavélin Hilmar Árni Halldórsson jafnaði metin fyrir Stjörnuna á 26. mínútu en hann skoraði geggjað mark beint úr aukaspyrnu. Ólafur Ingi Skúlason fékk rautt spjald hjá Fylki á 88. mínútu en hann átti ljóta tæklingu á Alex Þór Hauksson og dómurinn réttur. Stjarnan náði svo að tryggja stigin þrjú í uppbótartíma er ungstirnið Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði.

Bjarni Helgason blaðamaður Morgunblaðsins er lítt hrifin af því sem hann sá í Garðabænum í gær frá Fylki. „Fylk­is­menn skoruðu gott mark strax á fyrstu mín­útu en síðan ekki sög­una meir. Eft­ir að hafa kom­ist yfir féll liðið vel til baka og hrein­lega bauð Stjörnu­mönn­um inn í leik­inn sem þeir að sjálf­sögðu þáðu. Það er erfitt að fara yfir leik Árbæ­inga í kvöld og ætla að finna já­kvæða punkta,“ skrifar Bjarni á vef Morgunblaðsins en Bjarni ólst upp í Árbænum og er Fylkismaður.

Hann segir leikstí Fylkis ekki hafa verið merkilegan og ef vel eigi að ganga í sumar þurfi liðið að bæta sig mikið.

„Liðinu gekk af­leit­lega að halda bolt­an­um inn­an liðsins. Miðju­menn liðsins voru eins mikið úr takt og það verður og Stjarn­an hrein­lega lék sér að því að finna sókn­ar­menn liðsins í svæðinu á milli miðju og varn­ar, all­an leik­inn. Þá komust kant­menn Stjörn­unn­ar sí og æ í leik­stöðuna einn á meðan kant­menn Árbæ­inga voru allt of sein­ir að skila sér til baka og hjálpa.“

„Press­an var lé­leg, upp­spilið var lé­legt, og þetta var í raun eins slak­ur „sparka og vona“ fót­bolti og hann verður. Á meðan Geof­frey Castilli­on er ekki mætt­ur í Árbæ­inn þýðir lítið að spila fót­bolta eins og hann sé fremsti maður vall­ar­ins. Fylk­is­menn þurfa að gera miklu bet­ur ef þeir ætla sér að vera í efri hluta deild­ar­inn­ar í sum­ar.“

Grein Bjarna má lesa í heild hérna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjö félög sem gætu reynt að fá Salah frítt í sumar

Sjö félög sem gætu reynt að fá Salah frítt í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þorsteinn velur hóp fyrir mikilvæga landsleiki – Báðir á Laugardalsvelli í næsta mánuði

Þorsteinn velur hóp fyrir mikilvæga landsleiki – Báðir á Laugardalsvelli í næsta mánuði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Maðurinn sem hatar Heimi heldur áfram eftir gærkvöldið – „Tann­læknirinn hefur fengið tækifæri, nú verður hann að fara“

Maðurinn sem hatar Heimi heldur áfram eftir gærkvöldið – „Tann­læknirinn hefur fengið tækifæri, nú verður hann að fara“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Enrique færir Michael Carrick góðar fréttir

Enrique færir Michael Carrick góðar fréttir
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool

Góð tíðindi fyrir andstæðinga Liverpool
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Salah áfram í Evrópu eftir allt saman?

Salah áfram í Evrópu eftir allt saman?
433Sport
Í gær

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni

Neville varpar fram áhugaverðri kenningu í kjölfar tilkynningar Salah í vikunni
433Sport
Í gær

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni

Dómaramistök aukist í ensku úrvalsdeildinni