fbpx
Miðvikudagur 07.maí 2025
433Sport

Næsta kynslóð af stjörnum Íslands: Líkt við heimsfræga einstaklinga

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 13. júní 2020 08:00

Valgeir er eftirsóttur biti. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska fótboltasumarið er að fara á fullt en á krepputímum eru tækifærin fleiri fyrir unga fót- boltamenn sökum þess að minna er um að keyptir séu menn að utan. Næsta kynslóð er öflug og getur vel tekið við keflinu af þeim sem eldri eru. Eins og áður eru efni- legustu leikmennirnir á Íslandi líklegir til þess að fara út í atvinnumennsku, haldi þeir rétt á spöðunum. Pepsi Maxdeild karla fer af stað um helgina þar sem þessir ungu drengir fá vonandi tækifæri til að springa út.

BRYNJÓLFUR ANDERSEN WILLUMSSON
Stór, sterkur og kvikur framherji. Það er beðið eftir því að Brynjólfur springi út en miklar væntingar eru gerðar til hans í Kópavogi þetta sumarið. Tvítugur og hefur spilað 31 leik í efstu deild og skorað fjögur mörk, lítið miðað við hvaða væntingar eru gerðar til Brynjólfs. Fær traustið í upphafi móts og þarf að sanna sig, er skapstór og sagður dýfa sér helst til of
mikið. Þarf að ná að stilla hausinn rétt til að ná langt

Gæti orðið hinn íslenski
Mario Balotelli

Jóhannes Kristinn fyrir miðju.

JÓHANNES KRISTINN BJARNASON
Þetta er nafnið sem flestir eru hvað spenntastir fyrir í íslenska boltanum í sumar. Fékk tækifæri með KR í aðdraganda mótsins en er aðeins 15 ára gamall. Stórlið hafa fylgst með framgöngu Jóhannesar um nokkurt skeið þrátt fyrir ungan aldur og í vetur fór hann í heimsókn til Rangers í Skotlandi. Hann æfði einnig með FCK í Danmörku og Genk í Belgíu. Faðir hans, Bjarni Guðjónsson, átti frábæran feril og lék lengi vel erlendis auk þess að verða Íslandsmeistari með KR og ÍA og koma nokkuð við sögu með
íslenska landsliðinu. Jóhannes er klókur miðjumaður en mikið hefur verið látið með kauða frá unga aldri og verður fróðlegt að sjá hvort hann fái tækifæri með KR í sumar.

Gæti orðið hinn íslenski
Steven Gerrard

VALGEIR LUNDDAL FRIÐRIKSSON
Valgeir hefur vakið mikla athygli fyrir vaska framgöngu með Val í vetur, ólst upp hjá Fjölni en Valur fékk hann til félagsins fyrir rúmu ári. Valgeir er stór og stæðilegur, getur bæði spilað sem bakvörður og miðvörður. Heimir Guðjónsson virðist hrifinn af Valgeiri og hefur sýnt honum mikið traust í aðdraganda mótsins, var frábær í æfingaleik gegn Breiðablik á dögunum. Þrátt fyrir talsverða hæð og styrk er Valgeir tæknilega góður og er með talsverðan hraða

Gæti orðið hinn íslenski
Thomas Meunier

FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR

VALGEIR VALGEIRSSON
Lítill og lúsiðinn er ágætis lýsing á Valgeiri sem er efnilegasti leikmaðurinn sem HK hefur séð í mörg ár. Erlend lið höfðu áhuga á Valgeiri í vetur en hann tekur slaginn með HK í eitt ár til viðbótar. Gerir mótherja sína hálf geðveika þegar hann byrjar að hlaupa og anda ofan í hálsmálið á þeim. Getur spilað bæði sem bakvörður og kantmaður, ef hann ætlar að ná langt í atvinnumennsku er líklega best fyrir hann að gerast hægri bakvörður.

Gæti orðið hinn íslenski
Park Ji-sung

RÓBERT ORRI ÞORKELSSON
Úr neðri deildum í næstbesta lið Íslands ef miðað er við síðustu tvö tímabil, Róbert Orri er örvfættur varnar- og miðjumaður. Líklegast er að Róbert Orri spili vinstra megin í þriggja manna varnarlínu Breiðabliks eða sem vinstri bakvörður. Vel spilandi, en Róbert ólst upp í Aftureldingu og hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands. Flest stærri lið Íslands höfðu áhuga á Róberti en Óskar Hrafn Þorvaldsson náði að sannfæra Róbert um að rétta skrefið væri í Kópavoginn.

Gæti orðið hinn íslenski
Aymeric Laporte

HÁKON RAFN VALDIMARSSON
Aðeins 19 ára gamall en kominn með góða reynslu úr meistaraflokki með Gróttu í neðri deildum, stóra prófið hans er í sumar. Fær sénsinn í deild þeirra bestu og ef vel gengur gæti Hákon Rafn náð að stíga skrefið út í atvinnumennsku. Stór og stæðilegur markvörður sem er góður í löppunum og frábær í að verja boltann. Efnilegasti markvörður deildarinnar og þarf að eiga frábært sumar til að Grótta geti haldið sér í deildinni.

Gæti orðið hinn íslenski
Marc-André ter Stegen

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Gleðin tók völd í klefanum hjá Glódísi – Söngur og dans þeirra vekur athygli

Gleðin tók völd í klefanum hjá Glódísi – Söngur og dans þeirra vekur athygli
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fyrirliðinn söng um stóran lim fyrir framan þúsundir manna – „Hann er það svo sannarlega“

Fyrirliðinn söng um stóran lim fyrir framan þúsundir manna – „Hann er það svo sannarlega“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United ætlar að bjóða Tom Heaton nýjan samning

United ætlar að bjóða Tom Heaton nýjan samning
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Real Madrid ætlar að kaupa sex leikmenn í sumar og margir koma til greina

Real Madrid ætlar að kaupa sex leikmenn í sumar og margir koma til greina
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Yfirgaf veitingastað pöddufullur og nú vill fólkið að hann selji hlut sinn í hvelli

Yfirgaf veitingastað pöddufullur og nú vill fólkið að hann selji hlut sinn í hvelli
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Færa leik til Tottenham svo United hafi ekkert forskot ef bæði lið komast í úrslit

Færa leik til Tottenham svo United hafi ekkert forskot ef bæði lið komast í úrslit