Graeme Souness, goðsögn Liverpool, vill sjá Chelsea reyna við markvörð Atletico Madrid í sumar.
Markvörðurinn umtalaði er að sjálfsögðu Jan Oblak sem hefur verið einn besti markmaður heims í dágóðan tíma.
Kepa Arrizabalaga er markvörður Chelsea í dag en hann hefur ekki verið sannfærandi á tímabilinu.
,,Vitum við hvað hann er gamall? 27? Þar hafiði það Chelsea,“ sagði Souness.
,,Chelsea er að leita að markverði. Hann hefur verið á toppnum í mjög langan tíma.“