fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
433Sport

Víkingur tekur sömu ákvörðun og ÍA: Hætta við ferðina til Spánar vegna kórónuveirunnar

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. mars 2020 13:51

Bikarmeistarar 2019

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kórónuveiran er að hafa mikil áhrif á íslensk knattspyrufélög sem mörg hver eru að fara í æfingaferð sína á næstu dögum.

Fyrr í dag var sagt frá því að ÍA væri hætt við ferð sína til Spánar, liðið átti að halda út í dag.

Víkingur Reykjavík ætlaði til Spánar á laugardag en hafa ákveðið að hætta við ferðina. Þetta staðfesti einn leikmaður Víkings við 433.is. Veiran breiðist hratt út á Spáni.

Fótbolti.net segir frá því að KA og Valur hafi ætlað að fara til Bandaríkjanna en Donald Trump, forseti þar í landi hefur bannað fólki frá Evrópu að ferðast til landsins.

Búist er við að fleiri félög taki sömu ákvörðun og ÍA og Víkingur en ástandið vegna kórónuveirunnar versnar, dag frá degi í Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

England: Tottenham náði í frábæran sigur á Etihad

England: Tottenham náði í frábæran sigur á Etihad
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stjóri Brentford um Wissa: ,,Hann skuldar mér“

Stjóri Brentford um Wissa: ,,Hann skuldar mér“
433Sport
Í gær

Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn

Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn
433Sport
Í gær

Sjáðu ótrúlegt mark í bikarúrslitunum

Sjáðu ótrúlegt mark í bikarúrslitunum