Allir leikir í ensku úrvalsdeildinni munu fara fram um helgina en heil umferð er á dagskrá.
Úrvalsdeildin hefur staðfest þetta en talað var um frestun vegna kórónaveirunnar.
Það verður heldur ekki leikið fyrir luktum dyrum um helgina og verður umferðin því að öllu eðlileg.
Heilsbrigðiseftirlitið á Englandi fylgist þó vel með stöðu mála og gæti verið lokað á stuðningsmenn á næstu vikum.
Leik Manchester City og Arsenal var frestað á miðvikudaginn vegna veirunnar.