fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
433Sport

Solskjær varaði leikmenn United við eftir sigur á City

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. mars 2020 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United vann gríðarlega mikilvægan sigur í ensku úrvalsdeildinni í fyrradag er liðið mætti Manchester City. United er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og var sex stigum frá Chelsea fyrir leikinn í gær.

Chelsea lagði Everton 4-0 en United tókst að svara og lagði grannana sína 2-0 á Old Trafford. Leikurinn var ágætis skemmtun en tvö mörk voru skoruð og það voru heimamenn sem gerðu þau bæði. Anthony Martial skoraði fyrra markið á 30. mínútu eftir laglega aukaspyrnu Bruno Fernandes. Ederson í marki City hefði þó mátt gera betur.

Ederson gerði sig svo sekan um önnur mistök í uppbótartíma er hann henti boltanum á Scott McTominay sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði í autt markið af löngu færi.

Ensk blöð segja að Ole Gunnar Solskjær, stjóri United hafi hrósað sínum mönnum eftir leik en einnig varað þá við. Þrátt fyrir góðan sigur, þyrftu leikmenn að halda sér rólegum.

Solskjær sagði við leikmenn að þeir þyrftu að halda sér niðri á jörðinni og ítrekaði það reglulega, hann vill halda leikmönnum á tánum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Gummi Ben kom Hjörvari verulega á óvart í beinni útsendingu – Fékk gjöf frá manninum sem hann hefur gagnrýnt mest

Gummi Ben kom Hjörvari verulega á óvart í beinni útsendingu – Fékk gjöf frá manninum sem hann hefur gagnrýnt mest
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Fyrirliðinn spenntastur fyrir þessum leikmanni í vetur

Fyrirliðinn spenntastur fyrir þessum leikmanni í vetur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sjáðu fyrsta mark Gyokores fyrir Arsenal

Sjáðu fyrsta mark Gyokores fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vildi ekki kveðja en var neyddur af liðsfélögunum – Sjáðu fallegt augnablik

Vildi ekki kveðja en var neyddur af liðsfélögunum – Sjáðu fallegt augnablik
433Sport
Í gær

Gæti óvænt tekið hanskana af hillunni og spilað á HM 2026

Gæti óvænt tekið hanskana af hillunni og spilað á HM 2026
433Sport
Í gær

England: Tottenham náði í frábæran sigur á Etihad

England: Tottenham náði í frábæran sigur á Etihad