FC Bayern má ekki fá áhorfendur á leik sinn gegn Chelsea á morgun í Meistaradeild Evrópu. Ástæðan er COVID-19 veiran. Bayern vann fyrri leik liðanna 0-3 á Englandi.
Veiran er að hafa mikil áhrif um allan heim og er víða um Evrópu verið að banna fólki að mæta á leiki eða leikjum frestað.
Áhorfendur eru bannaðir á leikjum á Spáni næstu tvær vikurnar, vegna COVID-19 veirunnar sem nú herjar á heimsbyggðina.
Á Ítalíu hafa allir íþróttaviðburðir verið bannaðir fram í byrjun apríl og allt landið sett í sóttkví.
Á Spáni hefur veiran breiðst hratt út síðustu daga og fjöldi fólks látið lífið, forráðamenn þar taka enga sénsa.
Englendingar hafa verið rólegri í tíðinni en þar er búist við því að leikið verði fyrir luktum dyrum, innan tíðar.
Confirmed: the Match @FCBayern vs @ChelseaFC in Champions League must be closed to the public. No supporters are allowed at Allianz Arena in Munich next wednesday #coronavirus
— Christian Falk (@cfbayern) March 10, 2020