Miðjumaðurinn Daníel Hafsteinsson er á leið til FH í Pepsi-Max deild karla samkvæmt fregnum dagsins.
Það er Leifur Garðarsson sem greinir frá þessu á Twitter en Daníel hefur undanfarið ár spilað í Svíþjóð.
Daníel er tvítugur að aldri en hann var keyptur til Helsingborg frá KA sumarið 2019.
Þar hafa tækifærin verið af skornum skammti og sýndi FH leikmanninum áhuga í kjölfarið.
Daníel spilaði 20 deildarleiki fyrir KA sumarið 2018 og 12 leiki sumarið 2019. Í þeim skoraði hann fjögur mörk.
Valsmenn reyndu að næla í Daníel frá KA síðasta sumar en hann tók að lokum skrefið erlendis.
Daníel Hafsteinsson hefði kostað Val 10 milljónir fyrir ári síðan, fór þá til Helsingborg.
Er nú á leið í Kaplakrika segir sagan.#fh #kaplakriki #pepsimaxmorkin #pepsimaxdeildin #olíulindinfundiníkrikanum #grafideftirgulli #syn— Leifur Gardarsson (@LGardarsson) 7 March 2020