fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
433Sport

Er United að tapa öðru stríði gegn Dortmund á stuttum tíma?

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. mars 2020 12:33

Jude Bellingham fagnar marki með Birmingham á sínum tíma.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United reynir eins og félagið getur til að sannfæra Jude Bellingham, 16 ára leikmann Birmingham að ganga í raðir félagsins.

Allt bendir hins vegar til þess að hann fari til Dortmund. Þannig segir The Athletic að Dortmund sé búið að ná samkomulagi við Birmingham um kaupverðið og að laun Jude Bellingham verði ekki vandamál.

Bellingham er enskur miðjumaður sem hefur vakið athygli fyrir vaska framgöngu á þessu tímabili í næst efstu deild.

Athletic segir að Manchester United sé á fullu þessa dagana að sannfæra Bellingham um að koma til félagsins frekar en að fara til Dortmund.

United tapaði slíku stríði í janúar þegar Erling Haaland valdi Dortmund frekar en United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nýtt ofurpar á leiðinni – Gengur ekkert í vinnunni en allt í blóma í einkalífinu

Nýtt ofurpar á leiðinni – Gengur ekkert í vinnunni en allt í blóma í einkalífinu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Amorim sagður pirraður á United

Amorim sagður pirraður á United