Sverrir Ingi Ingason spilaði allan leikinn fyrir PAOK í kvöld sem mætti Olympiakos í Grikklandi.
Um var að ræða leik í gríska bikarnum og fyrri leik liðanna af tveimur. Hann fór fram á heimavelli PAOK.
Olympiakos byrjaði leikinn gríðarlega vel og var komið í 2-0 eftir aðeins átta mínútur.
PAOK tókst hins vegar að svara með tveimur mörkum ekki löngu seinna og staðan 2-2 eftir 12 mínútur.
Það var svo vítaspyrna sem tryggði PAOK á 69. mínútu og fer liðið með forystu inn í síðari viðureignina.