Það er ómögulegt fyrir Juventus að leysa Cristiano Ronaldo af hólmi að sögn þjálfara liðsins, Maurizio Sarri.
Ronaldo er farinn til heimalandsins í dag en þar mun hann sjá um móður sína sem fékk heilablóðfall um helgina.
,,Ég veit ekki hvað mun gerast, þetta er persónulegt mál svo við ræðum þetta þegar hann snýr aftur,“ sagði Sarri.
,,Hann mun snúa aftur þegar þessi staða er komin á hreint. Það er augljóst að leikstíllinn breytist þegar Ronaldo er með eða þegar hann er ekki með.“
,,Það er enginn leikmaður sem getur tekið hans pláss svo augljóslega þurfum við að gera eitthvað í hans fjarveru.“