Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að hans menn séu of ‘vinalegir’ eftir tap gegn Wolves í gær.
Wolves vann Tottenham 2-3 á útivelli í gær en það síðarnefnda hefur verið í töluverðu veseni síðustu vikur.
,,Ég tel að úrslitin hafi ekki verið sanngjörn. Bæði lið reyndu að vinna á sinn hátt. Þeir eru svo öflugir í þessum skyndisóknum,“ sagði Mourinho.
,,Við reyndum mismunandi aðferðir. Það virkaði á sinn hátt því við skoruðum tvö mörk Þessi úrslit voru klárlega ósanngjörn.“
,,Við erum ekki eins ákafir. Við erum of vinalegir. Kannski var það munurinn á liðunum.“