Það eru þrír knattspyrnumenn búnir að greinast með kórónaveiruna hjá sama knattspyrnufélagi á Ítalíu.
Þetta hefur félagið Pianese á Ítalíu staðfest en liðið leikur í Serie C sem er þriðja efsta deild.
Leikmennirnir eru ekki nefndir nafni að svo stöddu en einn maður í starfsliði félagsins hefur einnig veikst.
Kórónaveiran hefur fundist víðsvegar á Ítalíu sem var einnig íslenskur ferðamaður það sem smitaðist.
Það er möguleiki á að EM fari ekki fram næsta sumar vegna veirunnar en það verður að koma í ljós á næstu mánuðum.