Það var dramatík undir lok leiks Everton og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Everton virtist hafa skorað sigurmark í uppbótartíma í dag er Dominic Calvert Lewin átti skot í Harry Maguire og í netið.
Gylfi Þór Sigurðsson var þó liggjandi í grasini fyrir framan David de Gea, markmann United, þegar boltinn rúllaði í netið.
VAR skoðaði markið og ákvað að lokum að Gylfi hefði áhrif á leikinn og var markið dæmt af.
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, var hundfúll og fékk að líta rauða spjaldið af dómara leiksins eftir lokaflautið.
Þetta má sjá hér.
Carlo Ancelotti just got sent off after his complaints about Everton disallowed goal 😲
Do YOU think it was offside? 🤔 pic.twitter.com/ho43GPdda8
— Soccer AM (@SoccerAM) 1 March 2020