Rúnar Alex Rúnarsson var í marki Dijon í kvöld sem spilaði við Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni.
Dijon fékk afar erfitt verkefni á útivelli gegn meisturunum og þurfti að sætta sig við stórt tap.
Rúnar fékk á sig fjögur mörk í leiknum en tvö af þeim komu frá sóknarmanninum Kylian Mbappe.
Pablo Sarabia og Mauro Icardi komust einnig á blað til að gefa PSG 13 stiga forskot á toppnum.