Fjölnir vann góðan sigur í Lengjubikarnum í dag er liðið mætti Víkingi Ólafsvík í Skessunni.
Fjölnismenn komu heitir til leiks eftir 3-2 sigur á Val í síðustu umferð og hafði liðið betur í dag sannfærandi 5-1.
Bæði Jón Gísli Ström og Ingibergur Kort Sigurðsson gerðu tvö mörk fyrir Fjölni.
Njarðvík vann endurkomusigur gegn Augnablik eftir að hafa lent 2-0 undir. Njarðvík sneri leiknum sér í vil og vann að lokum 3-2 sigur.
Grótta og Grindavík gerðu þá 2-2 jafntefli og Keflavík lagði KA, 2-1.
Grótta 2-2 Grindavík
1-0 Pétur Theodór Árnason
2-0 Kristófer Melsted
2-1 Aron Jóhannsson
2-2 Alexander Veigar Þórarinsson
Víkingur Ó. 1-5 Fjölnir
0-1 Jón Gísli Ström
1-1 Bjartur Bjarmi Barkarson
1-2 Jón Gísli Ström
1-3 Ingibergur Kort Sigurðsson
1-4 Sigurpáll Melberg Pálsson
1-5 Ingibergur Kort Sigurðsson
Njarðvík 3-2 Augnablik
0-1 Bjarni Þór Hafstein
0-2 Ísak Eyþór Guðlaugsson
1-2 Stefán Birgir Jóhannesson
2-2 Arnar Helgi Magnússon
3-2 Andri Gíslason
KA 1-2 Keflavík