Luke Shaw, leikmaður Manchester United, stefnir á að komast á EM með enska landsliðinu í sumar.
Shaw spilaði síðasta landsleik sinn fyrir 17 mánuðum síðan og er ekki fyrstur á blað hjá Gareth Southgate.
Þessi 24 ára gamli bakvörður berst þó enn fyrir því að komast á lokamótið í sumar.
,,Ég væri að ljúga ef ég myndi segja að ég hefði ekki hugsað út í þetta,“ sagði Shaw.
,,Ég held hausnum niðri og held áfram að vinna. Í lok dags þá er þetta ekki mín ákvörðun. Þetta er ákvörðun Gareth og ég virði hana.“