Alfreð Finnbogason lék með liði Augsburg í dag sem spilaði við Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni.
Alfreð er mættur aftur á völlinn eftir meiðsli og spilaði 80 mínútur í jafntefli í dag.
Augsburg komst yfir á 38. mínútu en Freiburg jafnaði svo metin með marki snemma í seinni hálfleik.
Alfreð og hans liðsfélagar eru í fínni stöðu og sitja í 11. sæti deildarinnar, níu stigum frá fallsæti.