fbpx
Mánudagur 02.febrúar 2026
433Sport

Klopp og Liverpool enn með óbragð í munni

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 13. febrúar 2020 11:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Philippe Coutinho, er orðaður við endurkomu til Liverpool en miðjumaðurinn frá Brasilíu hefur ekki fundið takt sinn eftir að hann fór frá Anfield. Coutinho var með læti í janúar árið 2018, hann vildi komast burt.

Coutinho fékk það í gegn og var seldur til Barcelona fyrir um 140 milljónir punda, þar gekk ekkert. Hann var lánaður til FC Bayern síðasta sumar og þar gengur lítið, hann situr nú sem fastast á bekknum.

Coutinho verður til sölu í sumar og hefur hann verið orðaður við endurkomu, The Athetic segir hins vegar að Liverpool sé ennþá með óbragð í munni eftir að Coutinho fór.

,,Vertu áfram hér og þú verður goðsögn, hjá Barcelona, Bayern eða Real Madrid verður þú bara leikmaður. Hér getur þó orðið meira,“ á Jurgen Klopp að hafa sagt við Coutinho undir lok árs 2017, það dugði skammt. Coutinho fór fram á sölu og fékk að fara.

Hvernig Coutinho kom fram við félagið er sagt hafa skilið eftir óbragð í munni Liverpool og Klopp, það bragð er enn í dag. Það gæti komið í veg fyrir að Coutinho geti snúið aftur.

Án Coutinho hefur Liverpool líka farið í tvígang í úrslit Meistaradeildarinnar og unnið hana einu sinni. Þá er félagið að vinna ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 30 ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Víkingur staðfestir kaup á Ármanni frá ÍA

Víkingur staðfestir kaup á Ármanni frá ÍA
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

West Ham að styrkja varnarlínuna eftir hálstak helgarinnar

West Ham að styrkja varnarlínuna eftir hálstak helgarinnar
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Telja furðulegar heimaæfingar birtar til að pirra fyrrverandi kærastann

Telja furðulegar heimaæfingar birtar til að pirra fyrrverandi kærastann
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ronaldo sagður í verkfalli í Sádí Arabíu – Fær 82 milljónir króna á dag en er ósáttur

Ronaldo sagður í verkfalli í Sádí Arabíu – Fær 82 milljónir króna á dag en er ósáttur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Óskar Hrafn byggir upp til framtíðar – Leikmaður fæddur árið 2011 byrjaði um helgina

Óskar Hrafn byggir upp til framtíðar – Leikmaður fæddur árið 2011 byrjaði um helgina
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Tottenham með alla anga úti til að styrkja sig

Tottenham með alla anga úti til að styrkja sig
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Tíðindi frá Liverpool: Kaupa efnilegasta varnarmann Evrópu – „Here we go“

Tíðindi frá Liverpool: Kaupa efnilegasta varnarmann Evrópu – „Here we go“