Það er farið að hitna undir Maurizio Sarri, þjálfara Juventus þrátt fyrir að liðið sé í öðru sæti Seriu A og með jafnmörg stig og topplið Inter.
Fótboltinn sem Juventus er að spila heillar ekki stuðningsmenn, liðið er ekki á góðum stað.
Nú segja erlendir fjölmiðlar að Juventus ætli að reyna að fá Pep Guardiola, frá Manchester City í sumar.
Ef Guardiola kæmi er því velt fyrir sér hvort hann gæti fengið Lionel Messi til Ítalíu. Messi er sagður ósáttur með stjórn Börsunga og gæti leitað annað.
Messi getur farið frítt frá Barcelona í sumar en hann þarf að láta félagið vita mánuði áður en félagaskiptaglugginn opnar.
Gæti hið ómögulega gerst að bestu knattspyrnumenn í heimi spili saman? Cristiano Ronaldo og Lionel Messi í sama liði.
Svona gæti Juventus litið út með Pep Guardiola við stýrið