Það er lúxus líf hjá leikmönnum Manchester United þessa dagana en liðið er í æfingaferð á Marbella.
Manchester liðið kom til Spánar á laugardag en liðið er í vetrarfríi, liðið á leik eftir viku gegn Chelsea.
Liðið dvelur á Kempinski Hotel sem er eitt það flottasta á Marbella, fimm stjörnu hótel með öllum þægindum sem fólk vill.
Liðið æfir þarna rétt hjá og reynir að bæta leik sinn enda United spilað illa í ár.
Myndir af hóteli liðsins eru hér að neðan.