Lauryn Goodman, fyrirsæta í Bretlandi á von á barni með enskum landsliðsmanni sem var fyrst um sinn ekki nefndur á nafn.
Nú hefur Goodman ákveðið að greina frá því að það er Kyle Walker sem er faðirinn. Walker er leikmaður Manchester City og enska landsliðsins. Walker er fluttur út frá Annie, sem hafði lengi verið kærasta hans.
Goodman er þekkt fyrirsæta í Bretlandi, en Walker hafði verið að halda framhjá kærustu sinni. Hann og Goodman höfðu verið að hittast um nokkrt skeið þegar hún varð ófrísk, óvænt en skemmtileg tíðindi enda hafði Goodman átt í vandræðum með að verða ófrísk.
Sagt er að Walker hafi hætt með kærustu sinni eftir atvikið og að samband hans og Goodman gott þessa dagana, þau ætli að gera það rétta fyrir barnið sem á að fæðast í apríl.
,,Ég hef verið niðurlægð, þetta er stressandi á síðustu vikum meðgöngu. Það eru sögusagnir og slúður. Ég vil því sjálf greina frá þessu,“ sagði Goodman.
,,Kyle Walker og ég eigum von á barni í apríl, við vorum nýhætt í samböndum okkar þegar við komumst að þessu. Þetta er í síðasta sinn sem ég tjái mig.“
Í apríl á síðasta ári flutti Walker út af heimilinu sem hann og Annie áttu, þá hafði hann verið gómaður í framhjáhaldi. Hann fór svo aftur heim en Walker og Annie eiga þrjú börn saman, það var síðan undir lok síðasta árs þegar Walker lét Annie vita að hann hefði barnað Goodman að hann fór aftur út af heimili sínu sem kostar um 500 milljónir
But after confessing to Annie that he was set to become a dad again with Lauryn, he moved out and is now living in a nearby flat.
Goodman var áður í sambandi með Dane Rashford, sem er bróðir Marcus Rashford framherja Manchester United.