Samkvæmt spænskum miðlum þá er Barcelona að skoða framherja að nafni Luis Suarez.
Þessi Luis Suarez gæti reynst arftaki Luis Suarez hjá Börsungum eins villandi og það kann að hljóma.
Suarez sem er nú á mála hjá Barcelona er kominn á seinni ár ferilsins og leitar Barcelona að arftaka hans fyrir framtíðina.
Hinn Suarez spilar með liði Real Zaragoza á Spáni og hefur skorað 14 mörk í 24 leikjum á þessu tímabili.
Hann er aðeins 22 ára gamall og er í láni hjá Zaragoza frá enska úrvalsdeildarliðinu Watford.
Suarez yrði um leið þriðji ‘Luis Suarez’ til að spila með Barcelona en annar Luis Suarez spilaði með liðinu frá 1955 til 1961.