Miðjumaðurinn Keisuke Honda er mættur til Brasilíu en hann hefur gert samning við Botafogo.
Honda er nafn sem flestir kannast við en hann lék með AC Milan frá 2014 til 2017 og áður með CSKA Moskvu.
Hann er þó þekktastur fyrir tíma sinn með japanska landsliðinu þar sem hann skoraði 37 mörk í 98 leikjum.
Honda er 33 ára gamall og fékk mögnuð viðbrögð frá stuðningsmönnum brasilíska liðsins í dag.
Það voru fjölmargir sem mættu til að taka á móti Honda í dag!
O JAPA TÁ AÍ! 🔥
Honda desembarca no Rio de Janeiro nos braços da torcida mais apaixonada do mundo! #HondaChegou ⭐️🇯🇵 pic.twitter.com/SE9woOFVqX
— Botafogo F.R. (@Botafogo) 7 February 2020